Fjármálaeftirlitið hefur í dag með vísan til 106. gr. laga nr. 161/2002 veitt samþykki sitt fyrir samruna Burðaráss við annars vegar Straum Fjárfestingarbanka og hins vegar Landsbanka Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Til þess að samruninn öðlist endanlega gildi þarf auk þess samþykki Samkeppniseftirlitsins.