Umsóknarfrestur um styrki úr styrktarsjóðnum Faðmi er til 23. júní, en úthlutunin fer fram 1. júlí.

Faðmur styrkir foreldra sem fengið hafa heilaslag og eru með börn á sínu framfæri.

Sjóðurinn er ekki framfærslusjóður heldur er ætlaður til að mæta útgjöldum er snúa að börnum á heimili þess sem verður fyrir heilaslagi.

Umsóknareyðublöð má nálgast á vef Heilaheillar.