Franz Árnason, forstjóri Norðurorku hf. og formaður stjórnar Samorku, var á dögunum kjörinn formaður Nordvarme til næstu tveggja ára. Jafnframt mun Samorka hafa veg og vanda af skrifstofuhaldi samtakanna á sama tíma.

Nordvarme er samstarfsvettvangur Norðurlandanna í málefnum hitaveitu, þar sem meðal annars er fjallað um rannsóknir og þróun, gæðamál, öryggismál, þróun Evrópuregluverks og fleira.