Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,15% í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa Regins hækkaði um 1,54%, TM um 0,91% og VÍS um 0,68%. Ekkert félag lækkaði í verði í dag. Velta á hlutabréfamarkaði nam 274,6 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,01% í viðskiptum dagsins. Verðtrygði hluti vísitölunnar hélst óbreyttur en sá óverðtryggði lækkaði um 0,03%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam rétt rúmum fjórum milljörðum króna.