Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 54.800 en voru 58.500 í sama mánuði árið 2008.

Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 6% miðað við janúar 2008.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á Austurlandi úr 1.400 í 650 eða um 54%. Gistinætur á Suðurlandi voru 2.700 í janúar og fækkaði um 10% frá fyrra ári, á Norðurlandi voru 1.700 gistinætur sem er 6% minna en í janúar 2008.

Gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði einnig 6%, voru 45.400 samanborið við 48.200 í janúar 2008.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.