Gistinætur á hótelum í apríl voru 174.300 sem er 11% aukning miðað við apríl 2014. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 16% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkar um 10% milli ára.

Erlendir gestir með flestar gistinætur í apríl voru með Bretar 35.800, Bandaríkjamenn með 22.700, og Þjóðverjar með 13.700 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili maí 2014 til apríl 2015 voru gistinætur á hótelum 2.427.000 sem er fjölgun um 13% miðað við sama tímabil ári fyrr.