Orkusalan þjónustar stórt hlutfall af sjávarútveginum, segir Hafliði Ingason hjá Orkusölunni. Hann segir tilganginn með básnum á sjávarútvegssýningunni ekki vera viðskiptalegs eðlis heldur til að skemmta viðskiptavinum.

Óhætt er að segja að það hafi verið fjörug stemning á básnum þar sem spilað var á gítar og skálað.