Greiningardeild Glitnis hefur lækkað verðmatsgengi sitt á Össuri í 125 krónur á hlut úr 132,4. Hún telur að sex mánaða markgengi vera 125 en það er spá greiningardeildar hvert gengi félagsins verður eftir sex mánuði.

?Verðmatsgengið er talsvert yfir gengi á markaði (111,0). Ráðlegging okkar til fjárfesta er að kaupa bréf í félaginu horft til langs tíma,? segir greiningardeildin.

Hún segir að helstu ástæður fyrir lækkuðu verðmatsgengi eru aukin fjárbinding og lækkun á USD/ISK gengiskrossi.