Glitnir hefur í dag lokið samræmdum uppsagnaraðgerðum á Íslandi sem fela í sér uppsögn 88 starfsmanna bankans. Um er að ræða starfsmenn úr flestum deildum og sviðum bankans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glitni.

Með þessum uppsögnum verður starfsmannafjöldi Glitnis á Íslandi svipaður og í upphafi árs 2007 eða um 1000.

„Órói á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefur á stuttum tíma gjörbreytt starfs- og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um allan heim. Íslensk fjármálafyrirtæki hafa ekki farið varhluta af þessari þróun og hefur dregið úr vexti þeirra á Íslandi sem og erlendis,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að áætlanir Glitnis á fyrri helmingi ársins 2007 gerðu ráð fyrir áframhaldandi hröðum vexti og tók uppbygging á innri starfsemi bankans mið af þeim áætlunum.

„Frá því í lok síðasta árs hefur Glitnir brugðist við breyttum aðstæðum á fjármálamarkaði, meðal annars með því að aðlaga starfsmannafjölda bankans að verkefnastöðu og umsvifum á Íslandi og erlendis,“ segir í tilkynningunni.

Á síðasta ári voru ráðnir 319 starfsmenn til Glitnis á Íslandi, sem er met í sögu bankans, segir í tilkynningunni.

„Áætlanir bankans gerðu ráð fyrir áframhaldandi hröðum vexti en nú er ljóst að þær forsendur hafa breyst. Í því ljósi hefur bankinn ákveðið að grípa til uppsagna sem snerta 88 starfsmenn bankans á Íslandi.“

Um er að ræða starfsmenn úr flestum stöðum, deildum og sviðum bankans. Skipting milli kynja er jöfn, meðalaldur þeirra sem um ræðir er um 40 ár, en um 2/3 þeirra starfsmanna sem um ræðir hafa starfað hjá bankanum í skemur en 5 ár.

Með þessu hefur stöðugildum á öllum starfssvæðum Glitnis fækkað um 255 vegna starfsloka, uppsagna eða vegna þess að lausráðnir starfsmenn hafa ekki verið fastráðnir.

Þeir starfsmenn sem sagt hefur verið upp munu flestir láta strax af störfum. Bankinn hefur upplýst Vinnumálastofnun og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja um umræddar uppsagnir.

Með þessum uppsögnum verður starfsmannafjöldi Glitnis á Íslandi svipaður og hann var í upphafi árs 2007 eða um 1000.

Tengt efni:

Lárus Welding: „Sársaukafullt að grípa til ráðstafana af þessu tagi“

Mikil endurskoðun í rekstri Glitnis hér heima og erlendis