Wall Street 2 verður frumsýnd á Íslandi í kvöld. Gordon Gekko, sem leikinn er af Micheal Douglas, er aðalpersóna myndarinnar. Sögusvið er fjármálakreppan seinni hluta árisns 2008. Myndin hefst þar sem Gekko er að ljúka afplánun fyrir innherjasvik innherjasvik. Hinn aðalleikari myndarinnar er Shia LaBeouf sem leikur Jacob, ungan miðlara og kærasta dóttur Gekko. Fyrirætlun Gekko og Jacob er tvíþætt, að vara efnahagskerfi heimsins við væntanlegu hruni og finna út úr því hver ber ábyrgð á dauða á læriföður unga miðlarans. Myndin verður sýnd Háskólabíó og Smárabíó.