Gunnlaugur Jónsson, forstjóri Linda Resources, segir í helgarviðtali Viðskiptablaðsins að mikil tækifæri gætu falist í olíuleit innan íslenskrar efnahagslögsögu: „Innan Linda Resources eru ekki aðeins eignir heldur einnig sú þekking sem við höfum byggt upp síðustu ár og teljum að tækifæri felist í að íslenskt félag sérhæfi sig á þessu sviði. Ekki aðeins vegna þess að félag af þessu tagi hefur skort í íslenska viðskiptaflóru heldur bindum við einnig miklar vonir við olíuvinnslu í íslenskri lögsögu,“ segir Gunnlaugur.

Sjáið viðtalið í heild sinni í helgarútgáfu Viðskiptablaðsins.