Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi hefur tekið við stöðu oddvita Framsóknar og flugvallarvina í borgarstjórn Reykjavíkur. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, fráfarandi oddviti, fer í veikindaleyfi og fæðingarorlof fram á næsta sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

„Við ætlum að halda áfram að sýna meirihlutanum aðhald og eftirlit, og berjast fyrir okkar málefnum. Á sama tíma ætlum við að styðja hann þegar hann gerir góða hluti," segir Guðfinna í viðtali við Viðskiptablaðið.

„Það er svo leiðinleg pólitík að vera alltaf að rífast. Maður verður líka að sýna hinum stuðning þegar þeir eru að gera góða hluti, þó þeir séu ekki í sama flokki.“

Þá mun Gréta Björg Egilsdóttir, varaborgarfulltrú flokksins, koma inn sem borgarfulltrúi. Jóna Björg Sætran og Ingvar Jónsson verða þá varaborgarfulltrúar flokksins.