Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,05% í tiltölulega litlum viðskiptum á skuldabréfamarkaði í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,14%, en sá óverðtryggði lækkaði um 0,16%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 5,3 milljörðum króna.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,17% í dag í tæplega 700 milljóna króna viðskiptum. Langmest viðskipti voru með bréf Haga, eða fyrir um 530 milljónir króna. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 1,61%, en bréf Marels lækkuðu um 0,78% og Icelandair um 0,19%.