Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,73% í dag og endaði í 1.,387,31 stigi. Gengi bréfa Nýherja hækkaði um 3,43%, en reyndar í afar litlum viðskiptum. Þá hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,64% og Marels um 1,02%.

Gengi bréfa Össurar lækkaði um 1,39% og HB Granda um 0,93%. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag nam 843 milljónum króna.