Alls hafa 168 bílar af gerðinni Toyota Land Cruiser 150 verið seldir í ár. Það eru bílar sem þegar hafa verið skráðir auk bíla sem hafa verið pantaðir og verða afhentir á næstu vikum. Fyrstu þrjá mánuði ársins hafa 55 Land Cruiser 150 verið skráðir á götuna.

Þeir Land Cruiser bílar sem hafa nú þegar verið skráðir á götuna eru meira en tvöfalt fleiri í ár en þeir voru á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs en þá voru þeir 22. Allt árið í fyrra voru 187 bílar skráðir. Þá er búið að selja þrettán Land Cruiser 200 á árinu, en þar af hafa níu bílar þegar verið skráðir.

Listaverð á Land Cruiser 150 er á bilinu 10-12 milljónir króna en listaverð á Land Cruiser 200 er um 18-20 milljónir króna. Því lætur nærri að í ár hafi selst Land Cruiser bílar fyrir um tvo milljarða króna.