Hamborgarafabrikkan mun opna nýjan stað í Kringlunni í vor. Nýi staðurinn verður á svipuðum slóðum og veitingastaðurinn Hard Rock Café var á sínum tíma. Þar hefur nú verið starfræktur staðurinn Portið.

Fram kemur í tilikynningu að nýja Fabrikkan verður af svipaðri stærð og þær sem fyrir eru og verður matseðillinn sá sami.

„Kringluna hefur  lengi vantað skemmtilegan fjölskylduveitingastað til að fylla í skarðið sem Hard Rock Café skildi eftir sig á sínum tíma. Við erum því einstaklega ánægð með að fá Hamborgarafabrikkuna í hús. Þetta er góður dagur fyrir Kringluna,“ segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar.

Hamborgarafabrikkan verður opin alla daga vikunnar frá morgni til kvölds.