Heildareignir tryggingarfélaganna námu 136,2 milljörðum króna í lok september og hækkuðu um 13,3 milljarða á milli mánaða.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en nýtt félag tók við öllum vátryggingum Sjóvá-Almennra trygginga hf. í mánuðinum og starfar hið nýja félag undir merkjum Sjóvá. Lagðir voru inn í hið nýja félag um 16 milljarðar til að bæta eiginfjárstöðu félagsins, sem skýrir hækkun heildareigna milli mánaða.

Útlán og markaðsverðbréf námu 70,5 milljörðum króna og jukust um 15,2 milljarða. Eigið fé hækkkaði um 33,1 milljarð króna og nam 55,8 milljörðum króna í lok september.