Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:50 í 4.257 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en ekki er mikil hreyfing á félögunum fyrir utan Eik banka [ FO-EIK ] sem lækkar töluvert.

Velta með hlutabréf er rétt tæplega 210 milljónir. Um helmingur af þeirri veltu er með bréf í Glitni [ GLB ] eða um 103 milljónir. Þá er velta með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] fyrir um 73 milljónir en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 0,4% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 153,3 stig.