Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.215 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga, en aðeins eitt félag Spron [ SPRON ], hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 480 milljónir. Þar af eru tæpar 230 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], tæpar 80 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og um 70 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst í morgun um 0,2% og er gengisvísitalan nú 158,7 stig.