Hulda Dóra Styrmisdóttir skrifstofustjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar hefur verið skipuð nýr stjórnarformaður Nýja Kaupþings.

Hulda starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka á árunum 2001-2004.  Þá hefur hún sinnt stjórnendaráðgjöf og kennslu.