Kaupþing var meðal þeirra aðila sem starfsmenn á vegum sérstaks saksóknara gerðu  húsleit hjá á þriðjudag. Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri staðfestir þetta í samtali við Viðskiptablaðið.

Húsleitir fóru fram á tíu stöðum í dag og á þriðjudag í tengslum við rannsókn á kaupum félagsins Q Iceland Finance ehf. á 5,01% hlut í Kaupþing banka í september sl.

Ekki fæst uppgefið hjá embætti sérstaks saksóknara hjá hvaða aðilum  húsleitir fóru fram. Ein þeirra var hins vegar gerð í höfuðstöðvum Kaupþings. Finnur staðfestir húsleitina en vill ekki upplýsa nánar um hana.

Eins og fram kom á vb.is fyrr í dag hafa nokkrir aðilar fengið réttarstöðu sakbornings.