Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,47% í dag og er 5.574,06 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands.

FL Group hækkaði um 4,21% og Mosaic Fashions hækkaði um 3,58% en það síðar nefnda mun birta uppgjör sitt á miðvikudaginn. Uppgjörið er fyrir fjórða ársfjórðung síðasta fjárhagsárs þar sem fyrirtækið styðst ekki við almanaksárið. Greiningardeild Glitnis spáir að félagið muni hagnast um 5,8 milljónir punda (um 800 milljónir íslenskra króna) á ársfjórðungnum.

Straumur-Burðarás hækkaði um 3,07% en fjárfestingarbankinn mun birta fyrsta ársfjórðungsuppgjör sitt á fimmtudaginn. Greiningardeild Glitnis spáir að hann muni hagnast um 14 milljarða á tímabilinu.

Kaupþingi banki hækkaði um 2,71% en bankinn birtir uppgjör einnig á miðvikudaginn og greiningardeild Glitnis spáir að hagnaður tímabilsins nemi 14 milljörðum. Dagsbrún skipar fimmta sætið yfir þau félög sem hækkuðu mest í dag, eða um 2,55%

Alfesca lækkaði um 3,70% í dag, Atlantic Petroleum lækkaði um 3,14%, Nýherji lækkaði um 2,11%, Tryggingamiðstöðin lækkaði um 1,19% og Flaga Group lækkaði um 0,31%

Gengi krónunnar styrktist um 1,32% og er 130,90 stig, samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum. Dollar lækkaði um 1,71% gagnvart krónu og evra lækkaði um 1,32% gagnvart krónu.