Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1% í dag og stóð við lok markaða í 894 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 0,4% fyrir helgi en hefur lækkað jafnt og þétt í dag.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði hins vegar um 0,25% og stendur nú í 313 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins eitt félag, Eimskipafélagið, hækkaði í dag og heldur því gömlu Úrvalsvísitölunni á floti.

Velta með hlutabréf var sáralítil eða rétt tæpar 30 milljónir króna. Þar af voru um 12,5 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá var velta fyrir tæpar 3,5 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.

Velta með skuldabréf nam í dag tæpum 10,7 milljörðum króna en þar af var mesta veltan með bréf í flokki RIKB 10 1210 eða tæpir 1,9 milljarðar króna.