Úrvalsvísitalan hækkaði um 1.21% í viðskiptum dagsins og endaði í 5.502 stigum.

Flest félög í Kauphöllinni hækkuðu í dag en mest hækkaðu bréf FL Group eða um 5%. Flaga hækkaði um 2,33%, Kaupþing banki um 2,18% og Dagsbrún um 2%.

Aðeins fjögur félög lækkuðu í dag. Atlantic Petroleum lækkaði um 1.13%, Straumur-Burðarás um 0,62%, Icelandic Group um 0,58% og Marel um 0,57%.

Krónan styrktist um 0,2% í viðskiptum dagsins og gengisvísitalan var 128,04 stig við lokun markaða.