Ný vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,8% á milli febrúar og mars, samanborið við 1,9% hækkun í febrúar. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 5,2% samanborið við 5,7% í síðasta mánuði. HMS birti nýjar tölur klukkan 15:30 í dag.

Líkt og HMS kynnti nýja vísitölu íbúðaverðs fyrir mánuði síðan en hún inniheldur einnig íbúðaverð á landsbyggðinni ólíkt fyrri vísitölu. Nýja vísitalan er gæðaleiðrétt, sem felur í sér að breytingar á milli mánaða í „gæðum“ seldra eigna ætti ekki að hafa áhrif á þróun vísitölunnar.

HMS gefur nú út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar.

Í marsmánuði hækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 1,1% milli mánaða og hefur nú hækkað um 4,6% á síðustu tólf mánuðum. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6% milli mánaða og nemur ársbreyting þessarar undirvísitölu 4,9%‏.‏

Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni lækkaði um 0,8% milli mánaða en hefur engu að síður hækkað um 9,4% á síðustu tólf mánuðum. í Sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 1,3% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 6,0% á ársgrundvelli.