Inga Ásta Karlsdóttir hefur verið ráðinn útibússtjóri Landsbankans á Akureyri. Inga var einn 32 umsækjenda um stöðuna sem auglýst var í október. Inga er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og á að baki langan feril í Landsbankanum.

Inga hefur gengt stöðu útibússtjóra Landsbankans á Ísafirði undangengin fimm ár en var áður fyrirtækjatengill útibúa á Norður- og Austurlandi í útlánamati Landsbankans með aðsetur á Akureyri, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Landsbankans í Reykjavík og afgreiðslustjóri Landsbankans á Kópaskeri.

Inga var formaður ferðmálasamtaka á Norðausturlandi um hríð og hún hefur setið í Fagráði um atvinnuuppbyggingu kvenna á Vestfjörðum á vegum Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða og verið í Framkvæmdaráði um Vaxtasamning Vestfjarða.

Inga er í sambúð með Robert Boulter fiskeldisfræðingi og eiga þau tvö börn.

Inga tekur til starfa á Akureyri í janúar.