Inga Skarphéðinsdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda og hefur þegar hafið störf. Tekur hún við stöðu Bjargar Ástu Þórðardóttur, sem fara mun til starfa hjá Samtökum iðnaðarins um miðjan mánuðinn.

Inga hefur starfað hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur frá árinu 2014, en áður vann hún fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, hjá Logos lögmannsþjónustu og Íslandsbanka. Hún lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2013.