Innheimtufyrirtækið Gjaldskil hefur innleitt stafrænar stefnubirtingar frá hugbúnaðarfyrirtækinu Justikal.

Justikal setti nýlega á markað nýja lausn sem gerir aðilum kleift að birta stefnur og önnur gögn með rafrænum hætti. Markmið félagsins er að gera alla málsmeðferð fyrir dómstólum hraðari, þægilegri og öruggari.

„Við viljum gera notendum kleift að vinna með nútímalegri vinnubrögðum en áður og liður í þeirri vegferð er að geta birt stefnur með rafrænum hætti. Markmið okkar og Gjaldskila fara ákaflega vel saman en bæði félögin vilja fara umhverfisvænni og skilvirkari leiðir og okkur hlakkar til að sjá samstarfið blómstra," segir Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Justikal.

Gjaldskil býður upp á heildstæðar lausnir við innheimtu. Félagið hefur sérhæft sig í rafrænum lausnum í kröfustýringu og innheimtu. Gjaldskil segir að stórt skref hafi verið tekið á dögunum með innleiðingu á stafrænum stefnubirtingum og öruggum gagnasendingum með Justikal kerfinu.

„Með þessu viljum við tryggja að birtingar berist hratt og örugglega til réttra aðila, ásamt því að lækka kostnað greiðenda,” segir Dagbjört Hauksdóttir, forstöðumaður löginnheimtu Gjaldskila.

Stefna Gjaldskila Debitum er að vera fremstir innheimtuaðila í rafrænum og skilvirkum lausnum. Félagið var fyrst til að innleiða að fullu rafrænt innheimtuferli og er rafræn birting á greiðsluáskorunum og stefnum í samstarfi við Justikal liður í þeirri vegferð.