Isavia hefur tekið við flugumferðarstjórn á flugvellinum Kangerlussuaq (Syðri-Straumfirði), vestan megin á Grænlandi. Mittarfeqarfiit, sem rekur flugvellina á Grænlandi óskaði eftir því við Isavia að fyrirtækið tæki við stjórn flugumferðar á flugvellinum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Kangerlussuaq er eini flugvöllurinn á Grænlandi með reglubundið flug á þotum til Danmerkur og jafnframt eini flugvöllurinn sem er með flugumferðarstjórn. Hinir ellefu flugvellirnir á Grænlandi eru með tiltölulega stuttar flugbrautir og þar er ekki flugumferðarstjórn heldur er veitt flugupplýsingaþjónusta.

Isavia hefur komið upp flugstjórnarhermi sem notaður er til þjálfunar flugumferðarstjóra og nú stendur yfir þjálfun íslensku flugumferðarstjóranna sem koma til með að vinna í flugturninum í Kangerlussuaq. Fyrst um sinn munu fjórir flugumferðarstjórar sinna þjónustunni en tveir bætast við í haust.

„Isavia og forverar fyrirtækisins hafa frá árinu 1946 stýrt flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu sem nær yfir meiri hluta Grænlands frá 20.000 feta hæð og upp úr og því átt í mjög góðu samstarfi við bæði Grænland og Danmörku á sviði flugleiðsögu. Það er ánægjulegt að samstarfið hafi verið útvíkkað með þessum hætti og sýnir styrk Isavia og flugleiðsöguþjónustu félagsins á heimsvísu,“ segir Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia.