Jón Ásgeir Jóhannesson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar fjölmiðla um kaup hans á fjölmiðlahluta 365 hf. í síðustu viku og beiðni Ágúst Ólafar Ágústssonar, formanns viðskiptanefndar Alþingis um að krefjast upplýsinga frá viðskiptabönkunum um hugsanlegar lánveitingar til Nýrrar sýnar ehf. (áður Rauðsólar ehf.).

Yfirlýsingin er hér birt í heild sinni:

Maður kemur fram opinberlega og segist ætla að brjóta á rétti annars manns. Sá seinni segir: Ef þú brýtur á rétti mínum mun ég kæra þig. Sá fyrri kallar það ósvífnar og forkastanlegar hótanir.

Það er eðlilegt að margvíslegar tilfinningar ráði för fólks þessa dagana. Þó má gera þá kröfu að þingmaður, formaður viðskiptanefndar Alþingis og varaformaður stærsta stjórnmálaflokks landsins byggi málflutning sinn á rökum og fari að lögum.

Ágúst Ólafur Ágústsson sagðist á borgarafundi í Iðnó myndu krefjast upplýsinga frá viðskiptabönkunum um hugsanlegar lánveitingar til Nýrrar sýnar ehf. (áður Rauðsólar ehf.).

Með því krefst hann brota á lögum um bankaleynd og sú krafa fær aukið vægi í ljósi þess að ríkið er eigandi viðskiptabankanna.

Þetta er grafalvarlegt mál og það dugar þingmanninum ekki að skjóta sér á bak við annars ágæt tilmæli Samkeppniseftirlitsins, sem komu fram þremur dögum eftir að hann lofaði lögbrotunum.

Hvar ætlar þingmaðurinn draga mörkin í þessari furðulegu rannsókn sinni? Verða bankaviðskipti fleiri einkafyrirtækja – eða jafnvel einstaklinga – að umfjöllunarefni hjá alþingi? Eða er sjálfsagt að brjóta á rétti sumra fyrirtækja vegna eignarhalds þeirra og almennrar stemmningar í samfélaginu?

Réttlætingin á lögbrotunum er sögð staða og samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Hún er sú að ríkissjóður dælir árlega þrjú þúsund milljónum í RÚV sem þó keppir við einkarekna fjölmiðla um auglýsingafé og hefur yfirburðastöðu á markaðinum.

Morgunblaðið er sagt í miklum rekstarvanda. Skjár Einn hefur sagt upp öllu starfsfólki og hverfur kannski af sjónarsviðinu á næstunni. Viðskiptablaðið er í greiðslustöðvun og 365, með Fréttablaðið og Stöð 2 innanborðs, hefði farið í þrot fyrir viku síðan ef ekkert hefði verið aðhafst.

Það eina sem vakti fyrir mér með kaupum á fjölmiðlum 365 var að forða 365 frá að lenda í gjaldþroti. Það hefði valdið miklum skaða, ekki síst fyrir lánardrottna, gert starfsmenn atvinnulausa og fjölmiðlaflóru landsins mun fábrotnari.

Ég hef margoft lýst yfir að öllum núverandi hluthöfum 365 gefst kostur á að kaupa sambærilega eignarhluti í Nýrri sýn ehf. Eignarhald á umræddum fjölmiðlum mun því ekki breytast nema einhverjir núverandi hluthafar 365 kjósi að taka ekki þátt í hlutafjáraukningunni.

Fari svo að núverandi hluthafar nýti ekki forkaupsrétt sinn, verða nýir hluthafar fengnir að félaginu og þannig tryggt að eignarhaldið verði áfram dreift.

Að lokum þykir mér rétt að upplýsa, svo þingmaðurinn geti einbeitt sér að öðrum og mikilvægari verkefnum, að fjármagn til kaupa Nýrrar sýnar á fjölmiðlum 365 kom ekki frá íslenskum viðskiptabönkum.

Jón Ásgeir Jóhannesson.