Myndin af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni birtist í Degi 11. júlí 1998. Í viðtali við blaðið var Jón Ásgeir sagður vera næsta kynslóð matvörubransans sem vildi mæta nýrri öld með nýjungar uppi í erminni.

„Kóngarnir í þessum bransa hafa oft sofnað. Við ætlum hins vegar að hafa öfluga vekjaraklukku og vaka yfir öllum góðum nýjungum,“ sagði Jón Ásgeir meðal annars.

Gamla myndin birtist í Viðskiptablaðinu 16. janúar 2014. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér .