Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráherra, segir að þau drög að nýju frumvarpi um stjórn fiskveiða, sem birt voru á vef ráðuneytisins í gær, séu vinnuskjöl en ekki fullbúið stjórnarfrumvarp.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Jóni sem send var fjölmiðlum fyrir stundu. Eins og áður hefur verið greint frá hafa aðrir stjórnarliðar, þ.á.m. forsætisráðherra, gagnrýnt drögin harkalega. Þannig sá Jóhanna Sigurðardóttir ástæðu til þess að ítreka í hádegisfréttum RÚV í dag að hér væri ekki um stjórnarfrumvarp að ræða.

Jón Bjarnason segir hins vegar að um sér að ræða vinnuskjöl starfshóps um breytingar á stjórn fiskveiða. Málið hafi verið kynnt í ríkisstjórn síðastliðinn þriðjudag og rætt þar á tveimur ríkisstjórnarfundum.

Yfirlýsing Jóns er svohljóðandi:

„Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið lagði í gær fram á vef sínum vinnuskjöl starfshóps um breytingar á stjórn fiskveiða. Málið var kynnt í ríkisstjórn síðastliðinn þriðjudag og rætt þar á tveimur ríkisstjórnarfundum.

Þess misskilnings gætir að um sé að ræða fullbúið stjórnarfrumvarp eða tillögur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Um er að ræða vinnuskjöl sem geta orðið umræðugrundvöllur.

Tveir mánuðir eru nú liðnir frá því Alþingi afhenti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti þær umsagnir sem fram komu vegna frumvarps til nýrra laga um fiskveiðistjórnun frá síðastliðnu vori. Starfshópur fékk það hlutverk að fara yfir umsagnirnar og koma fram með sínar tillögur. Afrakstur af þeirri vinnu eru þau skjöl sem nú liggja fyrir.

Sú ákvörðun að kynna þær almenningi var kynnt í minnisblaði sem lagt var fyrir ríkisstjórn og er í anda opinnar stjórnsýslu og þess gagnsæis sem mælt er fyrir um í yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar.

Það er von mín að tillögurnar verði grundvöllur málefnalegrar umræðu um stjórn fiskveiða.“