Júlíus Vífill Ingvarsson var rétt í þessu kjörinn formaður stjórnar Faxaflóahafna á fundi borgarstjórnar. Kosningar fara nú fram á fundinum. Kjartan Magnússon var kjörinn formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.

Vilhjámur Þ. Vilhjálmsson var kjörinn formaður stjórnar Sorpu og Gísli Marteinn Baldursson var kjörinn formaður stjórnar Strætó. Hanna Birna Kristjánsdóttir var kjörin forseti borgarstjórnar.

Sjálfstæðismenn voru auk þess kjörnir formenn allra níu fagráða borgarinnar.