Gengi hlutabréfa norska fjármálafyrirtækisins Storebrand hækkaði um 7,1% í morgun og hækkunina rekja sérfræðingar til þess að norsk fjármálayfirvöld heimiluðu Kaupþingi banka að auka hlut sinn í félaginu í 20% í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu til norsku kauphallarinnar.

Norska tryggingarfélagið Gjensidige hefur einnig fengið leyfi til að auka hlut sinn í 19,99% og telja sérfræðingar að nú stefni í yfirtökuslag um fyrirtækið.

"Það lítur út fyrir að Kaupþing og Gjensidige muni keppa um að kaupa fyrirtækið," segir Matti Ahokas, sérfræðingur hjá Handelsbanken Capital Markets.

Hluthöfum í norskum bönkum og tryggingarfélögum er einungis leyft eiga 10% hlut án þess að sækja um sérstakt leyfi frá fjármálayfirvöldum.

Gjensidige er stærsti hluthafinn í Storebrand með 9,99% hlut og Kaupþing banki er skráður fyrir 7,8% hlut. Hins vegar er Arion Custody (safnreikningur), sem stýrt er af Kaupþingi, með 8,8% hlut í Storebrand.