Baugur mun formlega ráða John King, fyrrverandi forstjóra Matalan-verslunarkeðjunnar, til að stýra House of Fraser á morgun þegar yfirtöku félagsins á breska fyrirtækinu lýkur, segir í frétt breska dagblaðsins The Times.

King hefur hætt störfum hjá Matalan, en Kaupþing banka studdi nýlega yfirtöku stofnandans John Hargreaves á félaginu.

Núverandi forstjóri félagsins John Coleman mun hætta hjá House of Fraser. Don McCarthy, fyrrverandi eigandi Rubicon-verslunarkeðjunnar, sem nýlega sameinaðist Mosaic Fashions, mun verða stjórnarformaður House of Fraser.