Sýn hefur komist að samkomulagi við Kristínu Friðgeirsdóttur, sem starfað hefur sem fjármálastjóri fyrirtækisins frá árinu 2021, um að hún láti af störfum. Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Haft er eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted, sem tók við sem forstjóri Sýnar í byrjun árs, að Kristín láti af daglegu störfum á næstu dögum en verði félaginu innar handar þar til eftirmaður hennar hefur verið ráðinn.

„Síðustu ár hafa verið viðburðarrík á fjármálasviði Sýnar og mörgum stórum verkefnum nú lokið. Það er því eðlilegt að annar taki við keflinu. Ég vil þakka öllu starfsfólki Sýnar fyrir frábært samstarf og óska þeim alls hins besta,“ segir Kristín.