Gengisvísitalan er nú 157,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 157,2 stig en var á föstudag 157,7 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 0,9 % síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 81,9 krónum, Evran í 120,4 krónum og Sterlingspundið í 152,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,5 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,1 krónu.