Gengisvísitalan er nú 144,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og stendur krónan því styrkst um 0,9% frá opinberri skráningu krónunnar í gær.

Eins og greint var frá í morgun hafði krónan veikst í byrjun dags og var opinbert gengi Seðlabankans kl. 11 í morgun 146,73 stig en var í gær 145,93 stig sem þýðir veiking krónunnar um 0,5%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans. Hafa skal í huga að lokagildi dagsins í dag miðast við markaðsverð.

Evran stendur nú í 112,9 krónum, Bandaríkjadalur í 71,9 krónum og Sterlingspund í 141,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 70,8 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum.