Lánasjóður sveitarfélaga hélt skuldabréfaútboð í dag í einum flokki. Tilboðum var tekið fyrir 260 milljónir að nafnvirði með ávöxtunarkröfunni 5,5%. Útistandandi í flokknum upphaflega voru 6.430 milljónir og heildarstærð flokksins núna er því 6.690 milljónir.