Launavísitala í desember 2010 er 383,1 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,5%, samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Vísitala kaupmáttar launa í desember 2010 er 107,2 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,0%.

Frétt Hagstofunnar .