Launavísitala hækkaði um 0,1% milli desember og janúar samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 3,1%. Vísitala kaupmáttar launa í janúar hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 3,2%.