Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,02% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 239,34 stigum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,05%, en sá óverðtryggði hækkaði um 0,20%.

Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 13,04 milljörðum króna og þar af var velta með óverðtryggð bréf um 7,9 milljarðar. Það sem af er mánuðinum hefur GAMMA vísitalan hækkað um 0,91%, verðtryggði hluti hennar um 1,24% og sá óverðtryggði um 0,06%.