Níu íbúðir af 40 hafa selst í Skuggahverfisblokkunum við Vatnsstíg 16 til 18 í Reykjavík á þeim tæpa mánuði sem þær hafa verið í sölu. Það er fasteignasalan Stakfell sem sér um sölu á íbúðunum.

Ekki er um neinar smáskonsur að ræða með útsýni yfir Faxaflóa og borgina. Útsýnið verður betra eftir því sem ofar dregur. Íbúðir í blokkinni eru frá 135 til 180 fermetrar á 19 hæðum og er þakíbúð efst uppi.

Verðið liggur frá 44 milljónum króna fyrir tveggja herbergja íbúð og upp í tæpar hundrað milljónir fyrir stærstu íbúðirnar nálægt þakíbúð. Svipuðu máli gegnir um þakíbúðina við Vatnsstíginn og aðrar íbúðir á meðal þeirra efstu í blokkinni. Hún er farin. Þakíbúðin er 276 fermetrar og markaðsvirði hennar yfir 100 milljónum króna.