Ráðstefna undir yfirskriftinni Afleiðingar og eftirköst efnahagshrunsins – 10 ár frá efnahagshruni, var haldin föstudaginn 15. júní síðastliðinn í húsakynnum Háskóla Íslands.
Félag stjórnmálafræðinga ásamt Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála stóð fyrir ráðstefnunni. Jón Gunnar Bernburg, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Arna Hauksdóttir héldu erindi á ráðstefnunni.
Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, hélt erindi um fjöldamótmæli í kjölfar hrunsins.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, dósent í opinberri stjórnsýslu og stefnumótun við Háskóla Íslands, hélt erindið: Þegar storminn hefur lægt.
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins lét sig ekki vanta á fundinn.
Jóna Sólveig Elínardóttir, fyrrverandi alþingismaður Viðreisnar.
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands.
Vilhjálmur Árnason heimspekiprófessor við Háskóla Íslands.
Eva Heiða Önnudóttir, doktor í stjórnmálafræði.
Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.