Samskiptafyrirtækið Nova boðar breytta notkun farsímans með tilkomu netsins í símann. Viðskiptavinum Nova býðst að fara á netið og spjalla saman á MSN í farsímanum.

Í fréttatilkynningu frá Nova segir að um 150 þúsund Íslendingar noti MSN, en sá hópur hefur fram til þessa þurft að sitja við tölvu til að geta notað þetta samskiptaform. Vinatónar er ný þjónusta Nova sem gerir hinn hefðbundna biðsón úreltan. Þegar hringt er í viðskiptavini Nova þá heyrir sá sem hringir ekki bara gamla taktfasta biðsóninn heldur tónlist sem viðskiptavinur Nova velur.

Internet í símann á margfalt lægra verði

Nova leggur áherslu á að þjónusta fyrirtækisins sé samkeppnishæf við þá þjónustu sem fólk þekkir og notar. Hjá Nova kosta myndsímtöl það sama og önnur símtöl. Greitt er fyrir Internet í símann eins og aðra internetþjónustu eftir gagnamagni og býður Nova slíkan pakka á 990 kr. / 100 MB innifalin, sem er margfalt lægra verð en hjá samkeppnisaðilum, segir í tilkynningunni.

Stærsti skemmtistaður í heimi

Í tilkynningunni er haft eftir Liv Bergþórsdóttur framkvmdastjóra Noba: „Í dag má segja að netið sé stærsti skemmtistaður í heimi. Þar „hittir” fólk vini sína, kynnist nýju fólki, spjallar, ræðir þjóðmálin, deilir sögum og reynslu og sækir sér upplýsingar og fróðleik – allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Viðskiptavinir Nova fá nú aðgang að óendanlega stórum skemmtistað í gegnum farsímann, stað sem er alltaf opinn. Nova opna nýjar dyr inn á þennan skemmtistað og þangað eru allir velkomnir,”