Kauphöllin hefur samþykkt umsókn Nýja Glitnis banka hf. um aðild að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar.

Aðildin er virk frá og með deginum í dag, 16. október, 2008.

Auðkenni Nýja Glitnis banka í viðskiptakerfinu er GLB. Það auðkenni var áður notað af Glitni banka hf. en aðild hans hefur verið sagt upp.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.