Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Þröst Eysteinsson í embætti skógræktarstjóra til fimm ára. Þröstur er skipaður í embætti skógræktarstjóra frá 1. janúar næstkomandi og er honum m.a. falið að fylgja eftir nýlegum tillögum starfshóps um sameiningu skógræktarstarfs ríkisins í eina stofnun.

Þröstur hefur frá árinu 2003 starfað sem sviðsstjóri Þjóðskóganna hjá Skógrækt ríkisins en hann var annar tveggja umsækjenda sem hæfnisnefnd mat hæfastan til að gegna embættinu.

Þröstur lauk doktorsprófi í skógarauðlindum frá háskólanum í Maine í Bandaríkjunum og meistaragráðu í skógfræði frá sama skóla. Áður en hann tók við stöðu sviðsstjóra Þjóðskóganna starfaði hann sem fagmálastjóri Skógræktar ríkisins og þar á undan sem sérfræðingur hjá rannsóknarstöð sömu stofnunar sem og héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins á Húsavík.