Nýr hraðall fyrir viðskiptahugmyndir og nýjar tæknilausnir á sviði tónlistar mun hefja göngu sína í haust. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalin, sem samkvæmt tilkynningunni er ætlað að auka verðmætasköpun í íslensku tónlistarumhverfi. Allt að sjö verkefni verða valin til þátttöku í verkefninu sem hefst í október n.k. og fá þau aðgang að fullbúinni vinnuaðstöðu, ráðgjöf og leiðsögn frá fjölmörgum sérfræðingum, fjárfestum og reyndum frumkvöðlum þeim að kostnaðarlausu yfir fjögurra vikna tímabil. Að verkefninu standa Tónlistarborgin Reykjavík, ÚTÓN og  Icelandic Startups með stuðningi Senu Live, Samtóns og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytissins.

Umræddur hraðall hefur hlotið heitið Firestarter, Reykjavik Music Accelerator, og miðar hann að því að rækta tónlistarfrumkvöðla, styrkja umgjörð viðskipta og efla tengsl tónlistar við umhverfi nýsköpunar og tækni, að því er segir í tilkynningunni. Þá er jafnframt óskað eftir umsóknum sem snúa að nýjum hugmyndum og verkefnum á sviði tónlistar og tæknilausna. Opið er fyrir umsóknir í Firestarter til og með 30. ágúst n.k. á vefsíðu verkefnisins firestarter.is.

Firestarter hefst í október 2019 og stendur yfir í fjórar vikur. Allt að sjö verkefni verða valin til þátttöku og fá aðgang að sameiginlegu vinnurými, fræðslu, ráðgjöf og leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga. Hraðlinum lýkur í nóvember á Iceland Airwaves með kynningum fyrirtækjanna á hugmyndum sínum fyrir fjárfestum, völdum ráðstefnugestum og öðrum lykilaðilum á sviði tónlistar.

Framkvæmd verkefnisins er í höndum Icelandic Startups sem hefur m.a. umsjón með viðskiptahraðlinum Startup Reykjavik og frumkvöðlakeppninni Gullegginu.

Vaxtarmöguleiki hjá tónlistarsenunni

María Rut Reynisdóttir, verkefnastjóri Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur, segir að með hraðlinum vilji þeir sem standa að verkefninu styðja við umgjörðina utan um tónlistariðnaðinn, eitthvað sem hafi ekki verið gert áður á Íslandi. „Við eigum sterka tónlistarsenu en lítinn iðnað og þar er virkilega möguleiki fyrir vöxt. Ég tel að yngri kynslóðir séu töluvert opnari fyrir tækifærum tengdum viðskiptahlið tónlistariðnaðarins.“

„Tónlist er vissulega listgrein, en til þess að hún blómstri líka sem starfsgrein þarf stöðuga endurnýjun í umhverfinu og nýjar hugmyndir fyrir nýja tíma með það í huga að við eru huti af stórum markaði sem nær hringinn í kringum hnöttinn,“ segir Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri ÚTÓN, í tilkynningunni.

Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups, kveðst vera spennt fyrir að taka á móti íslenskum tónlistarfrumkvöðlum í haust. „Markmið okkar er að hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra. Við leggjum mikla áherslu á alþjóðlega nálgun í allri umgjörð verkefnisins og tengsl við helstu fagaðila. Við erum afar stolt af þessu samstarfi.”