Eigendur eignarhaldsfélagsins Daníels Ólafssonar ehf., sem á og rekur heildsölufyrirtækið Danól og Ölgerðina Egil Skallagrímsson, hafa sett fyrirtækið í sölumeðferð, segir í fréttatilkynningu.

Félögin verða seld saman eða hvort í sínu lagi að því gefnu að ásættanlegt kauptilboð berist. Sölumeðferðin er í höndum MP Fjárfestingarbanka og er áætlað að hún taki um sex vikur, segir í tilkynningunni.

Árið 2005 var besta ár í rekstri beggja fyrirtækja frá upphafi. Velta Danól hefur vaxið jafnt og þétt og var 2,3 milljarðar 2005. Ölgerðin hefur vaxið um 50% frá því í janúar 2002 og var velta fyrirtækisins í fyrra um 5,5 milljarðar.

?Bæði fyrirtæki eru með mjög sterka markaðshlutdeild. Mikil tækifæri eru til frekari vaxtar hjá hvoru fyrirtæki um sig og samlegðaráhrif fyrirtækjanna geta verið veruleg," segir í fréttatilkynnu frá seljanda.

Einar Friðrik Kristinsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Danól í 42 ár, mun hætta störfum hjá félaginu.

?Ég hef verið lengi í þessum rekstri og finnst kominn tími til að draga mig í hlé. Nú eru góðar aðstæður til að selja enda margir fjársterkir aðilar sem hafa bolmagn til að kaupa. Við viljum koma fyrirtækjunum í hendur traustra aðila sem geta haldið uppbyggingu rekstrarins áfram og tryggt starfsfólkinu öruggt starfsumhverfi. Margir hafa sýnt fyrirtækjunum áhuga enda er um að ræða afar sterk og vel rekin fyrirtæki með afbragðs starfsfólk og mikla framtíðarmöguleika.?

Danól er eitt stærsta innflutnings- og dreifingarfyrirtæki landsins. Fyrirtækið selur einungis vörur frá erlendum framleiðendum. Meðal heimsþekktra vörumerkja Danól eru Merrild, Nestlé, Nescafé, Duni, Neutral, Oroblu, Quality Street, KitKat og After Eight. Vörumerki Danól eru með leiðandi stöðu á sínum markaði, flest í fyrsta eða öðru sæti.

Danól var 1932. Eigendur félagsins eru hjónin Einar Friðrik Kristinsson framkvæmdastjóri og Ólöf Októsdóttir. Hjá fyrirtækinu starfa um 60 manns. Vöxtur Danól hefur verið hraður en fyrirtækið hefur keypt 21 innflutningsfyrirtæki frá 1985. Sjö þeirra voru sameinuð Ölgerðinni 2003

Ölgerðin Egill Skallagrímsson, sem stofnuð var 1913, hefur verið í eigu Danól frá því í apríl 2002. Ölgerðin er eitt þekktasta og stærsta iðnfyrirtæki landsins með nær 600 vörunúmer og 130 starfsmenn. Fyrirtækið er með starfsstöðvar í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og í Borgarnesi.

Ölgerðin framleiðir, flytur inn, dreifir og markaðssetur gosdrykki, vatn, öl, bjór, léttvín, sterkt áfengi og snakk. Ölgerðin er leiðandi í sölu og markaðssetningu á gosi, með yfir 40% markaðshlutdeild, og vatni þar sem markaðshlutdeild er yfir 70%.

Ölgerðin er næststærsti innflutningsaðili landsins á léttvínum og hefur vaxið hraðast á þessum ört vaxandi markaði. Ölgerðin rekur sterkvínsframleiðslu fyrir innlendan og erlendan markað í Borgarnesi. Vatnsútflutningur tvöfaldaðist á síðasta ári en þá voru rúmlega 400 gámar af vatni fluttir á erlenda markaði.