Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Gao Hucheng, utanríkisviðskiptaráðherra Kína, eru sammála um að mikil tækifæri til nýrra samstarfsverkefna milli íslenskra og kínverskra fyrirtækja muni opnast með fríverslunarsamningnum, sem þeir tveir munu undirrita fyrir hönd þjóða sinna síðar í dag að viðstöddum forsætisráðherrum þjóðanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Li Keqiang.

Þetta kom fram á fundi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra með Gao Hucheng utanríkisviðskiptaráðherra Kína í Peking í morgun, að því er segir í fréttatilkynningu.

Með samningnum falla niður tollar á nokkrum af mikilvægustu útflutningsafurðum Íslendinga inn á markað í Kína. Í dag og á morgun verður einnig skrifað undir fjölda samstarfssamninga milli íslenskra fyrirtækja og kínverskra aðila.

Á fundinum vakti Össur máls á fjölmörgum samstarfsverkefnum. Meðal annars hvatti hann utanríkisráðherra Kínverja til samstarfs um olíuverkefni á Drekasvæðinu en íslenskt fyrirtæki sem stofnað hefur verið í þeim tilgangi hefur óskað eftir samvinnu við kínverska fyrirtækið Sinopec um það.

Kínverski ráðherrann fagnaði sömuleiðis þeim tækifærum sem geti skapast í samskiptum ríkjanna við auknar siglingar yfir norðurpólinn en Kínverjar og Íslendingar hafa verið sammála um að Miðleiðin svokallaða sé hentugasta skipaleiðin milli Asíu og Evrópu í framtíðinni. Umskipunarhöfn á Íslandi gæti þá orðið ein af mikilvægum áfangastöðum á þeirri leið. Viðskiptaráðherra Kína hvatti til þess að íslensk og kínversk stjórnvöld þróuðu það samstarf áfram.